Sagan okkar hófst við smábátahöfnina á Akureyri.

þar sem sjómaður varði áratugum í að fullkomna harðfiskverkun sína, rétt eins og kynslóðir sjómanna á undan honum.

Harðfiskurinn hans var léttari, þynnri og dásamlega stökkur — svo ljúffengur undir tönn að erfitt var að hætta að narta. Hann verkaði fiskinn fyrir sjálfan sig, fjölskylduna og vinina, og í hvert sinn sem hann deildi honum með öðrum féll fólk fyrir honum.

Einn þeirra var góður vinur hans og veiðifélagi til margra ára. Hann hafði smakkað margan harðfiskinn um ævina en vissi að þessi var einstakur. Honum fannst að fleiri ættu að fá tækifæri til að smakka hann og reyndi árum saman að vekja áhuga barna sinna á að stofna harðfiskframleiðslu. Allir voru sammála um að þetta væri besti harðfiskur sem þau hefðu smakkað — en ekkert okkar beit á agnið, fyrr en nú. Með blessun sjómannsins, röð af heppni og mikilli vinnu varð Stökkfiskur til.

Von okkar er einföld: að Stökkfiskur verði snakk sem Íslendingar geta gripið í hvar sem er — heima, á ferðalagi, í fjallgöngu, eftir dag á sjónum eða hvenær sem þig langar í eitthvað hollt og gott.

Við byrjum hér á Íslandi, þar sem allt hófst.

Og kannski deilum við honum einn daginn víðar.

En í bili erum við einfaldlega ánægð með að deila honum með þér.

Bestu Kveðjur,

Sigrún Finna Snædal